Microsoft Dynamics NAV 2009 – Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: Ágúst 2009
Microsoft kappkostar að vernda friðhelgi einkalífs þíns samtímis því sem fyrirtækið býður fram þann árangur, það afl og þau þægindi sem þú vilt fá þegar þú notar einkatölvu. Þessar reglur um persónuvernd veita svör við mörgum spurningum um aðferðir Microsoft Dynamics NAV 2009 við gagnasöfnun og notkun. Reglurnar beinast að notkunarvalkostum sem notaðir eru til samskipta við internetið. Reglurnar gilda ekki fyrir önnur vefsvæði Microsoft á Netinu eða utan Netsins eða aðrar afurðir eða þjónustu.
Microsoft Dynamics NAV 2009 er alhliða lausn við rekstrarstjórnun sem aðstoðar fólk við að vinna hraðar og snjallar og gefur fyrirtækinu þínu þann sveigjanleika sem þarf til að aðlagast nýjum tækifærum og vexti. Forritið er kjörið fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og felur í sér byltingu fyrir notendur og býður upp á tækninýsköpun sem einfaldar aðgengi að upplýsingum, bætir viðbragðsflýti fyrirtækja, hagræðir samrunaferli á víðtæku sviði notkunarbúnaðar, og eykur möguleika til skýrslugerðar jafnvel varðandi mest sérhæfðu starfsgreinar og rekstrareiningar.
Söfnun og notkun upplýsinganna
Þær upplýsingar sem við söfnum frá þér munu verða notaðar af Microsoft og dótturfélögum og aðildarfyrirtækjum til að auðvelda notkun þeirra aðgerða sem þú notar og veita þá þjónustu eða framkvæma þær aðgerðir sem þú hefur óskað eftir eða heimilað. Einnig er hægt að greina og endurbæta vörur og þjónustu frá Microsoft.
Vera kann að við sendum ákveðin lögboðin þjónustusamskipti eins og boðsbréf, reikningsítrekanir, upplýsingar um málefni sem varða tæknilega þjónustu og þjónustutilkynningar. Sumar Microsoft þjónustudeildir kunna að senda út reglubundin bréf til meðlima og eru bréfin þá talin vera hluti þjónustunnar. Við kunnum líka endrum og sinnum að biðja þig um ábendingar, bjóða þér að taka þá í könnunum eða senda þér kynningarefni til að upplýsa þig um aðrar vörur eða þjónustu sem fáanleg er frá Microsoft og aðildarfyrirtækjum þess.
Til að geta boðið þér samræmdari og sérstilltari reynslu af samskiptum þínum við Microsoft, þá er hægt að samlaga upplýsingar sem safnað er frá einu Microsoft þjónustusviði við upplýsingar sem fengnar eru frá annarri Microsoft þjónustu. Einnig kann að vera að við bætum við þær upplýsingar sem við söfnum með upplýsingum sem við fáum frá öðrum fyrirtækjum. T.d. getur verið að við notum þjónustu frá öðrum fyrirtækjum sem gerir okkur kleift að búa til almennan landsvæða-bundinn grunn sem byggist á IP-tölu þinni til þess að sníða ákveðna þjónustuþætti að landsvæði þínu.
Til þess að fá aðgang að netþjónustu Microsoft Dynamics NAV 2009 verður þú beðin/n um að slá inn netfang þitt og aðgangsorði sem við nefnum Windows Live™ ID. Þegar þú hefur valið þér Windows Live ID geturðu notað sömu heimildir til að skrá þig inn á mörg mismunandi Microsoft vefsvæði og þjónustusvæði sem og hjá völdum samstarfsaðilum Microsoft sem birta hjá sér Windows Live ID merkið. Með því að skrá sig inn á eitthvert Microsoft vefsvæði eða þjónustusvæði þá getur þú látið skrá þig sjálfkrafa inn þegar þú heimsækir önnur Microsoft vefsvæði og þjónustusvæði. Óskir þú frekari upplýsinga um það hvernig upplýsingar um aðgangsheimildir þínar eru notaðar þegar þú skráir þig inn á þátttökusvæðin getur þú lesið um það á yfirlýsingu Microsoft um persónuvernd á netinu á http://privacy.microsoft.com/.
Að undanskildu því sem lýst er í þessum reglum þá verða persónulegar upplýsingar sem þú lætur í té ekki framsendar þriðja aðila án þíns samþykkis. Endrum og sinnum ráðum við önnur fyrirtæki til að veita afmarkaða þjónustu fyrir okkar hönd, eins og til pökkunar, sendingar og afhendingar á keyptum vörum og annars konar póstsendingum, til að svara spurningum frá viðskiptavinum um vörur eða þjónustu, til skráningar á vinnsluatburðum eða við að framkvæma tölfræðilega greiningu á þjónustu okkar. Við munum einungis láta þessum fyrirtækjum í té þær persónulegu upplýsingar sem þau þurfa til að geta afhent þjónustuna og þeim er bannað að nota þessar upplýsingar í öðru skyni.
Microsoft kann að hafa aðgang að eða greina frá upplýsingum um þig þ. á m. um efni orðsendinga frá þér í því skyni að: (a) fullnægja lögum eða svara löglegum beiðnum eða vegna málaferla; (b) vernda réttindi eða eign Microsoft eða viðskiptavina okkar þ.m.t. til að framfylgja samningum okkar eða reglum sem fjalla um notkun þína á þjónustu, eða (c) gera ráðstafanir í góðri trú að slíkt aðgengi eða birting sé nauðsynlegt til að vernda persónulegt öryggi starfsmanna Microsoft, viðskiptavina fyrirtækisins eða almennings.
Upplýsingar sem safnað er af hálfu eða sent er Microsoft frá Microsoft Dynamics NAV 2009 kunna að vera geymdar og unnið úr þeim í Bandaríkjunum eða einhverju öðru landi þar sem Microsoft eða aðildarfyrirtæki þess, dótturfyrirtæki eða þjónustuveitendur eru með aðstöðu. Microsoft fylgir rammasamningi um gagna- og persónuvernd sem viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett fram varðandi söfnun, notkun og varðveislu gagna frá Evrópusambandinu.
Söfnun og notkun upplýsinga um tölvu þína
Þegar þú notar hugbúnað með netvalkosti þá er upplýsingum um tölvuna þína („staðlaðar tölvuupplýsingar“) sendar til þeirra vefsvæða sem þú heimsækir og á netþjónustu sem þú notar. Microsoft notar staðlaðar tölvuupplýsingar til að veita þér netþjónustu til að aðstoða þig við að endurbæta vörurnar okkar og þjónustu og fyrir tölfræðigreiningu. Algengt er að staðlaðar tölvuupplýsingar nái til upplýsinga eins og IP tölu, útgáfunúmer stýrikerfis, útgáfunúmer vafra og svæða- og tungumálastillinga. Í sumum tilvikum kunna staðlaðar tölvuupplýsingar einnig að ná til ID númer vélbúnaðar, sem greinir frá framleiðanda tækis, heiti tækis og útgáfunúmer. Ef um það er að ræða að ákveðinn notkunarvalkostur eða þjónusta sendir upplýsingar til Microsoft þá verða staðlaðar tölvuupplýsingar einnig sendar.
Nánari útlistun á persónuverndarreglum varðandi hvern einstakan notkunarvalkost Microsoft Dynamics NAV 2009 sem talinn er upp hér í þessum reglum um persónuvernd lýsa því hvaða viðbótarupplýsingum sé safnað og hvernig þær eru notaðar.
Notkun fótspora
Sumir Microsoft Dynamics NAV 2009 notkunarvalkostir kunna að nota fótspor. Fótspor er lítil textaskrá sem vefþjónn setur inn á harða diskinn þinn. Fótspor fela í sér upplýsingar sem vefþjónn getur síðar lesið af á því léni sem gaf út fótsporið handa þér. Fótspor er ekki hægt að nota til að keyra forrit eða senda frá sér vírusa til tölvunnar þinnar. Einn megintilgangur fótspora er að vera til þæginda þannig að tími þinn sparast. Þetta einfaldar ferlið við að skila viðeigandi efni, auðveldar sjónrænt yfirlit, o.s.frv.
Þú getur samþykkt eða hafnað móttöku fótspora með því að fara á Internet Options í stjórnborði í Windows og smella á Privacy flipa. Microsoft Dynamics NAV 2009 fer eftir persónuverndarstillingum sem þú velur í stjórnborði (eða í Windows Internet Explorer) og hleður ekki niður fótsporum hafir þú valið að leyfa ekki fótsporum að hlaðast niður. Notkunarvalkostir eins og Microsoft Dynamics Online Connect geta hugsanlega ekki starfað rétt með þessari stillingu. Þar að auki er hugsanlegt að notkunarvalkostir sem notaðir eru á vefsvæðum og þjónustusíður sem nota fótspor starfa hugsanlega ekki rétt í Internet Explorer. Fótspor sem hafa áður verið vistuð á harða diskinn hjá þér gætu ennþá verið lesin af Microsoft Dynamics NAV 2009 nema þú notir Internet Options í stjórnborði eða Internet Explorer til að fjarlægja áður vistuð fótspor.
Öryggi upplýsinga um þig
Microsoft kappkostar að aðstoða við að leggja sitt að mörkum við að vernda öryggi upplýsinga um þig. Við notumst við úrval mismunandi öryggistækniaðferða og ferla til að stuðla að því að verja upplýsingar þínar gegn því að óviðkomandi fái aðgang að þeim, gegn notkun óviðkomandi aðila eða til að koma í veg fyrir birtingu þeirra. Til dæmis þá geymum við upplýsingarnar frá þér inni á tölvukerfum með takmörkuðum aðgangi, sem eru geymdar í húsnæði við aðstæður sem eru stýrðar.
Breytingar á þessum reglum um persónuvernd
Við munum stöku sinnum uppfæra þessar reglur um persónuvernd til að endurspegla breytingar á vöruframboði okkar, þjónustu og svörun viðskiptavina. Þegar við tilkynnum um breytingar þá förum við yfir dagsetninguna um „nýjustu uppfærslu“ sem sést efst á þessu regluskjali. Séu fyrir hendi efnislegar breytingar á þessum reglum eða breytingar varðandi það hvernig Microsoft mun nota persónulegar upplýsingar þínar, munum við tilkynna þér annað hvort með því að birta tilkynningu um slíkar breytingar áður en breyting verður framkvæmd eða með því að senda tilkynningu beint til þín. Við hvetjum þig til að endurskoða reglulega þessar reglur til þess að vera upplýstur um það hvernig Microsoft verndar upplýsingarnar þínar.
Nánari upplýsingar
Microsoft fagnar athugasemdum frá þér varðandi þessar reglur um persónuvernd. Sértu með spurningar um þessar reglur eða ef þér finnst að við höfum ekki fylgt þeim skaltu vinsamlega hafa samband við okkur á navpriv@microsoft.com.
Microsoft Corporation
Microsoft Dynamics NAV Privacy
One Microsoft Way
Redmond, Washington 98052
USA
Sérstakar aðgerðir
Í lokahluta þessa skjals verður fjallað um eftirfarandi sérstöku aðgerðir:
Hjálp
Það sem þessi notkunarvalkostur gerir:
Þú getur valið að senda tölvupóst varðandi hjálparatriði með því að nota tengilinn neðst í hverju efnisatriði í hjálpinni.
Upplýsingum safnað, unnið úr þeim eða þeim dreift:
Þegar þú sendir tölvupóst með ábendingum til Microsoft fylgir netfangið þitt með svo og allar þær viðbótarupplýsingar sem þú vilt veita varðandi hjálparatriðin. Microsoft kann að safna netfangi þínu til að hafa samband við þig til þess að kanna frekar ábendingar frá þér. Netfangið þitt verður fjarlægt úr kerfum okkar eftir 90 daga.
Notkun upplýsinga:
Við notum ábendingar frá þér til að endurbæta hjálparefnið.
Val/stjórn:
Hægt er að stjórna upplýsingum sem þú sendir Microsoft með því að senda ekki tölvupóstskilaboð sem framkölluð eru með ábendingar tenglinum.
Microsoft Dynamics Online Connect
Það sem þessi notkunarvalkostur gerir:
Microsoft Dynamics Online Connect er netþjónusta sem veitir tengla á upplýsingar á vefsvæðunum CustomerSource og Microsoft Dynamics. Þessir tenglar eru tengdir hlutverki þínu og leiða á ítarefni, greinar í þekkingargrunninum, bloggfærslur og færslur á umræðusvæðum.
Upplýsingum safnað, unnið úr þeim eða þeim dreift:
Microsoft Dynamics Online Connect safnar upplýsingum frá Microsoft Dynamics NAV 2009, eins og um útgáfu og staðsetningu Microsoft Dynamics NAV 2009 sem þú notar, hlutverk þitt og raðnúmer uppsetningar.Að auki ef þú skráir inn á CustomerSource reikninginn er upplýsingum safnað af Microsoft Dynamics reikningnum þínum til að hjálpa við að sérstilla notkun þína á Microsoft Dynamics Online Connect.
Notkun upplýsinga:
Microsoft Dynamics Online Connect veitir upplýsingar sem eru sérsniðnar að hlutverki þínu og uppsetningu Microsoft Dynamics. Að auki ef þú skráir inn á Windows Live ID sem tengist Microsoft Dynamics reikningnum þínum mun Microsoft Dynamics Online Connect veita þér upplýsingar sem eru sérstilltar fyrir reikninginn þinn.
Val/stjórn:
Hafir þú skráð þig inn geturðu skráð þig út af Windows Live ID reikningnum þínum til að hætta að fá sérsniðnar upplýsingar. Einnig er hægt að fjarlægja þennan hluta frá hlutverkamiðaða biðlaranum. Í hlutanum Microsoft Dynamics Online Connect hlutanum skaltu smella á valmyndina Actions og smella síðan á Remove.
Villutilkynningar í Microsoft
Það sem þessi notkunarvalkostur gerir:
Villutilkynningar í Microsoft er þjónusta sem gerir þér kleift að tilkynna Microsoft um vandamál sem þú lendir í varðandi Microsoft Dynamics NAV 2009 og að taka við upplýsingum sem kunna að hjálpa þér að koma í veg fyrir eða leysa slík vandamál.
Upplýsingum safnað, unnið úr þeim eða þeim dreift:
Varðandi upplýsingar safnað er saman og unnið úr eða dreift með Villutilkynningum í Microsoft skal sjá persónuverndarstefnu Villutilkynninga í Microsoft á http://go.microsoft.com/fwlink/?LinkId=142005.
Notkun upplýsinga:
Við notum gögn um villutilkynningar til að leysa úr vandamálum varðandi viðskiptavini og til að endurbæta hugbúnað okkar og þjónustu.
Val/stjórn:
Þér verður gefin kostur á að taka þátt í Villutilkynningum í Microsoft þegar villa kemur upp. Þegar þú velur gera þennan valkost virkan munu Villutilkynningar í Microsoft tilkynna sjálfkrafa um vandamál sem þú verður fyrir hjá Microsoft. Þegar Microsoft þarf á aukagögnum að halda til að greina vandmálið þá birtist beiðni til þín um að fara yfir gögnin og taka ákvörðun um það hvort senda eigi gögnin.
Notendur fyrirtækjaútgáfu (Enterprise) geta notað hópstefnu til að stilla hvernig Villutilkynningar í Microsoft verka í tölvum þeirra. Grunnstillingar bjóða einnig upp á þann kost að slökkva á Villutilkynningum í Microsoft. Ef þú ert kerfisstjóri og villt grunnstilla hópreglur fyrir Villutilkynningar í Microsoft, má fá tæknilegar upplýsingar á http://go.microsoft.com/fwlink/?LinkId=142006.